- EAN13
- 9788728281864
- Éditeur
- SAGA Egmont
- Date de publication
- 22/03/2023
- Collection
- Jón Sigurðsson
- Langue
- islandais
- Fiches UNIMARC
- S'identifier
Livre numérique
-
Aide EAN13 : 9788728281864
- Fichier EPUB, avec Marquage en filigrane
8.99
„Saga hans er saga þjóðar hans og samtímis" segir í fyrsta af fimm bindum um
ævisögu Jón Sigurðssonar sem fæddist þann 17. júní árið 1811. Það bar snemma á
gáfum og fróðleiksþorsta Jóns en hann fluttist ungur úr foreldrahúsum til að
ljúka stúdentsprófi í Reykjavík og þaðan til Kaupmannahafnar til að leggja
stund á háskólanám. Hér fá lesendur innsýn í æsku og uppvöxt Jóns á
Hrafnseyri, þátttöku hans í félagsstörfum, persónulega hagi og félagslíf.
Dregin er upp lýsandi mynd af aðstæðum á Íslandi þess tíma og störfum Jóns í
þágu þjóðfélagsmála. Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga
Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í
fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933.
Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og
sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason. Páll
Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir
stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut
síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum
störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra
Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í
Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem
skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur
enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans
eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum
æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir
siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.

S'identifier pour envoyer des commentaires.